JW subtitle extractor

Skilaboð frá stjórnandi ráði (nr. 8, 2024)

Video Other languages Share text Share link Show times

Komiði sæl og blessuð.
Við skulum byrja á nokkrum fréttum af
bræðrum okkar og systrum í Eritreu.
Þið munið eflaust að í september 2024
handtóku yfirvöld 23 bræður og systur
sem höfðu safnast saman á samkomu.
En það er ánægjulegt að segja frá því að
7. desember 2024
var systir Saron Ghebru,
sem var komin átta mánuði á leið,
loksins leyst úr fangelsi.
Það eru svo sannarlega
mjög ánægjulegar fréttir.
En því miður er eiginmaður hennar
Fitsum Goitom
enn þá í fangelsi vegna trúar sinnar.
Og því miður handtóku yfirvöld í Eritreu
fimm trúsystkini okkar til viðbótar.
Þann 1. nóvember 2024 voru
fjögur trúsystkina okkar handtekin.
Þau eru á aldrinum 16 til 18 ára.
Zesani Biniam,
Ebenezer Yonas,
Sidon Tekeste
og Horeb Tekeste.
Þessi ungu trúsystkini okkar voru yfirheyrð
og síðan var farið með þau
í Mai Serwa fangelsið.
Þann 22. nóvember 2024
barst systur Almaz Gebrehiwot símtal.
Henni var sagt að dóttir hennar
hafði verið handtekin.
Þegar systir okkar fór síðan á lögreglustöðina
var hún umsvifalaust handtekin
en dóttur hennar var sleppt.
Þann 6. desember 2024
voru 68 bræður og systur í Eritreu
í fangelsi vegna trúar sinnar.
Haldið áfram að biðja fyrir þessum
ástkæru bræðrum okkar og systrum.
Og að sjálfsögðu biðjum við fyrir öllum
sem sitja í fangelsi vegna trúar sinnar.
Eins og sagt hefur verið frá á síðunni okkar
gáfu bæjaryfirvöld í Ramapo
leyfi til að hefja byggingarframkvæmdir
við nýja Betelheimilið
þann 6. nóvember.
Þetta þýðir að nú er hægt að byrja
á mörgum stórum verkþáttum.
Við erum þakklátir bæjaryfirvöldum
fyrir að fá leyfið
en að sjálfsögðu þökkum við
Jehóva fyrst og fremst.
En hvað er nú þegar búið
að gera í Ramapo
og hvað er á dagskránni?
Við skulum horfa á
stutt yfirlit yfir það.
Það er mjög ánægjulegt
að við höfum fengið
síðasta byggingarleyfið sem þarf
til að hefja framkvæmdir í Ramapo.
Svona lítur svæðið út núna.
Það hefur gríðarleg vinna verið lögð
í undirbúning verkefnisins
meðal annars hönnun svæðisins.
Það er búið að fella tré á svæðinu
og koma fyrir nokkrum byggingum
sem munu nýtast meðan á
framkvæmdum stendur.
En nú þegar við höfum leyfið
getum við hafið sjálfa
byggingarframkvæmdina.
Á næstu vikum og mánuðum
byrja verktakar að sprengja klöpp
sem er á svæðinu
til að jafna landslagið fyrir byggingarnar.
Það er heilmikið verk fyrir höndum
og það er áætlað að þessi
verkþáttur taki um 18 mánuði
en til samanburðar tók þetta
tæpa sex mánuði í Warwick.
Grjótið verður síðan mulið
og notað sem fyllingarefni
og til að byggja veggi
og það mun spara mikið af peningum.
Á næstu 12 til 18 mánuðum
byrja síðan sjálfboðaliðar
að setja lagnir í jörðina
fyrir vatn og rafmagn,
klára innkeyrslurnar að lóðinni
og steypa fyrstu grunnana
og þegar því er lokið
fara byggingarnar fljótlega að rísa.
Eins og bílastæðahúsið
og íbúðablokkirnar.
Það er ánægjulegt að sjá hvernig Jehóva
blessar þetta spennandi verkefni
hér á aðalstöðvunum.
Við biðjum áfram fyrir öllum þeim
sem taka þátt í verkefninu
og biðjum Jehóva um að blessa það.
Og við erum þakklátir ykkur,
kæru bræður og systur,
sem styðjið svo vel við
starf safnaðarins um allan heim.
Þið sýnið sama hugarfar
og er lýst í Sálmi 110:3.
Mörg þessara verkefna
eru ekki áberandi.
En sum verkefni eru mjög sýnileg.
Tökum dæmi.
Við sjáum mikið af bræðrum og systrum
á myndunum í ritunum okkar
og líka í öllum myndböndunum
sem við gefum út.
Á undanförnum árum hefur söfnuðurinn
framleitt mörg hundruð myndbönd
og m.a. heilu kvikmyndirnar
og á mótinu í ár hafið þið örugglega
notið þess að horfa á fyrsta þáttinn
í sögunni af lífi og starfi Jesú.
Það verður spennandi að sjá
alla 18 þættina.
Við kunnum mjög vel að meta
þann tíma og þá fyrirhöfn
sem bræður og systur leggja á sig
til að gera öll þessi verkefni
að veruleika.
Við höfum séð bræður og systur
frá öllum heimshornum í þessum myndböndum.
Í sumum tilfellum hefur verið tekið viðtal
við bróður eða systur
eða þau hafa sagt frásögu
úr sínu eigin lífi.
Sumir hafa leikið biblíupersónu
í myndbandi
eða einhvern annan
frá okkar dögum.
Kannski þekkirðu jafnvel einhvern sem
hefur fengið að leika í svona hlutverki.
En þá vaknar mikilvæg spurning.
Hvernig ættum við að líta á þá
sem koma fram í myndböndunum?
Þeir sem leika í myndböndum
safnaðarins eru vígðir þjónar Jehóva
sem reyna að vera auðmjúkir.
Þeir eru ekki að leita eftir
frægð eða frama.
Nei, þvert á móti,
þeir vilja beina öllu lofi til Jehóva
og sem betur fer skilja flestir
bræður okkar og systur
að þetta er rétt viðhorf.
En það er hætta fólgin í þessu
fyrir okkur öll.
Ef við dáumst að þeim einstaklingum
sem leiknir eru í myndböndunum okkar
þurfum við að gæta þess að
upphefja ekki leikarana sjálfa.
Nei, við líkjum frekar eftir trú þeirra
sem sagt er frá í orði Guðs Biblíunni.
Hugsið ykkur hvernig leikara myndi líða
ef við gæfum honum of mikla athygli
og litum á hann sem eitthvað frægðarmenni.
Hann gæti farið hjá sér
eða orðið vandræðalegur.
Þetta gæti til dæmis gerst
ef við myndum biðja viðkomandi
að vera á mynd með okkur
og enn verra ef við myndum
setja myndina á samfélagsmiðla
þar sem aðrir geta skrifað athugasemdir.
Í Júdasarbréfinu 16
fordæmir Biblían þá sem
„smjaðra fyrir öðrum í eiginhagsmunaskyni“.
Í neðanmálsathugasemd við versið stendur:
„Eða ‚dást að áberandi mönnum‘.“
Sumir þeirra sem leika í myndböndunum
hefur liðið mjög illa í aðstæðum þar sem
athygli hefur verið beint að þeim.
Sumum þeirra finnst óþægilegt að fara í
boð þar sem eru margir votta Jehóva.
Við verðum að hafa rétt viðhorf til þeirra
sem koma fram í myndböndunum okkar.
Dettur ykkur einhver biblíupersóna í hug
sem fékk óviðeigandi athygli
bara fyrir að sinna verkefni sínu?
Það væri hægt að nefna
Pál og Barnabas.
Í Postulasögunni 14 segir að þeir hafi
fengið mjög mikla athygli
eftir að Páll læknaði mann
sem var lamaður.
Þetta kraftaverk var trústyrkjandi
og markmiðið með því var að fá fól
til að lofa Jehóva og son hans,
en hvað gerðist?
Fólkið lofaði ekki Guð
heldur einbeitti sér bara
að Páli og Barnabasi.
Í Postulasögunni 14:11, 12 segir:
Hvert var vandamálið?
Í stað þess að lofa Jehóva
fyrir kraftaverkið
einblíndi fólkið bara
á þá sem Jehóva notaði.
Voru Páll og Barnabas
ánægðir með athyglina?
Sjáum hvað segir í versi 14 og 15.
Páll og Barnabas flýttu sér
að leiðrétta fólkið.
Þeir viðurkenndu fúslega að þeir
voru bara ófullkomnir menn
og sögðu að markmið þeirra var
að boða þeim
fagnaðarboðskapinn um Guð.
Það er það sama og Jesús gerði,
hann vildi að fólk lofaði Guð
en við eitt tækifæri var fólkið
svo frá sér numið af Jesú sjálfum
að það misskildi gjörsamlega
hvað Jesús var að kenna.
Í Jóhannesi 6:14, 15 segir:
Jesús kunni ekki að meta
þessa framkomu
svo hann fór burt frá hópnum
og hélt upp á fjallið einn síns liðs.
En hvernig geta þessi dæmi hjálpað okkur
að hafa rétt viðhorf til þeirra
sem við sjáum í myndböndunum?
Þessir auðmjúku bræður og systur
sem við sjáum í myndböndunum
eru bara að sinna verkefni
sem söfnuðurinn biður þau um að sinna.
Og eins og Páll, Barnabas og Jesús
vilja þau að allt lof fari til Jehóva.
Við vitum að sumir bræður og systur
eru beðin um að leika þjóna Jehóva
en aðrir þurfa að leika óvini Jehóva.
Getiði ímyndaði ykkur hversu erfitt það er
fyrir trúfastann bróður eða systur
að leika óvin Jehóva?
Við myndum ekki vilja
gera illt jafnvel verra
með því að vera neikvæð út í þá
sem eru beðnir um að leika slík hlutverk.
Við sjáum því greinilega
að við þurfum að sýna jafnvægi
þegar kemur að þeim
sem leika í myndböndunum.
Gerum þess vegna okkar allra besta
til að verðveita friðinn
og eininguna í söfnuðinum
með því að lofa Jehóva
en ekki bræður okkar og systur
sem koma fram í myndböndunum.
Hvað höfum við þá rætt
í þessum skilaboðum?
Það er frábært að systir Saron Ghebru
hefur verið leyst úr fangelsi í Eritreu.
En við biðjum áfram fyrir þeim 235
bræðrum og systrum út um allan heim
sem eru í fangelsi
vegna trúar sinnar.
Og það var spennandi að fá
byggingarleyfi
fyrir verkefnið í Ramapo,
sem þýðir að stórir verkþættir
geta loksins farið að hefjast.
Og við ræddum líka hversu mikilvægt
það er að hafa heilbrigt viðhorf
til þeirra sem koma fram
í myndböndunum.
Munið alltaf að við
elskum ykkur innilega mikið.
Með kveðju frá
aðalstöðvum safnaðarins,
þetta er Sjónvarp Votta Jehóva.