JW subtitle extractor

Af hverju ættir þú að vera heiðarlegur?

Video Other languages Share text Share link Show times

Það finnst öllum gaman að vinna
en getur unnið ef þú ert alltaf heiðarlegur?  
Það líkar engum við svindlara. 
En stundum virðist óheiðarleiki virka. 
Af hverju ættir þú þá ekki að vera óheiðarlegur líka?
Sérstaklega ef það skaðar engan.
En málið er að þú tapar meira á óheiðarleika en þú græðir. 
Og um leið og þú byrjar að vera óheiðarlegur
er erfitt að stoppa. 
Ef þér finnst þú hafa komist upp með lygi er stutt í þá næstu. 
Þér finnst kannski ekki svo slæmt að segja bara hálfan sannleikann. 
En það er lygi
ef það það villir um fyrir þeim sem eiga skilið að fá að vita allan sannleik. 
Og hvað er að því að ýkja aðeins? – til að eignast vini. 
Að þykjast vera annar en þú ert er bara önnur gerð af lygi. 
Til að byrja með virðist þetta virka vel
þangað til að áttar þig á
að þú ert búinn að búa til allt aðra útgáfu af sjálfum sér
sem byrjar að taka yfir líf þitt. 
Þú færð aldrei hvíld frá lygunum.
Það er erfiðara að muna eftir þeim en því sem gerðist í raun og veru. 
Fyrr eða síðar færðu að gjalda fyrir óheiðarleikann. 
Í Orðskviðunum 21:6 segir
að allur gróði sem við fáum af lygum sé eins og hverfult mistur.
Þú gæti tapað trausti og virðingu fjölskyldunnar. 
Þú gæti misst vini þína. 
Og ef þú heldur áfram að vera óheiðarlegur
getur það haft mjög alvarlegar afleiðingar. 
En þetta er ekki það eina sem óheiðarleiki kostar þig.
Hann hefur áhrif á sjálfsmynd þína. 
En þú getur valið að vera heiðarlegur og séð hvernig það borgar sig. 
Þegar þú færð tækifæri til að velja auðveldu
og óheiðarlegu leiðina skaltu segja nei. 
Þá veistu að þú hefur sjálfur unnið fyrir árangrinum. 
Þú getur áunnið sér traust og virðingu fjölskyldunnar
með því að segja alltaf satt. 
Það gæti haft einhverjar afleiðingar en þú getur lært af mistökunum
og eignast vini sem elska þig eins og þú ert. 
Heiðarleiki er alltaf betri kostur en óheiðarleiki
í fjölskyldunni, með vinunum og fyrir sjálfan þig.