JW subtitle extractor

Sjónvarp Votta Jehóva – mars 2026

Video Other languages Share text Share link Show times

Þetta er frábært
myndband, pabbi:
Sagan um Jónas kennir okkur að
vera hugrökk og sýna miskunn.
Það er góð leið til að
læra um Jónas
en Biblían hjálpar okkur
að grafa enn dýpra
ef við spyrjum
einfaldrar spurningar:
Hvað læri ég um Jehóva?
Ég ætla að skrifa þetta niður.
Var eitthvað sérstakt
sem þú tókst eftir?
Ég tók klárlega eftir fyrirgefningu
og þolinmæði Jehóva.
Ég er sammála.
Jehóva sýndi honum mikla þolinmæði
á meðan hann styrkti trú sína.
Í kafla 3, versi 1
gaf Jehóva honum
annað tækifæri.
Hann verndaði hann þegar hann
þurfti að taka afleiðingum gerða sinna
og seinna leiðrétti hann
rangt hugarfar hans mildilega.
Það er magnað að Jehóva
skyldi ekki gefast upp á Jónasi.
Já, en sá eiginleiki á sér nafn:
tryggur kærleikur.
Manstu hvað það merkir?
Ég held það.
Annað gott ráð er:
Hvernig væri að
skoða merkinguna?
Leitaðu af
„tryggur kærleikur“
í leitarglugganum í Biblíunni.
Sérðu krækjuna að
orðaskýringunni?
Já, hérna er það.
Ertu til í að lesa það sem stendur?
Þetta er akkúrat það sem ég
tek eftir í sögunni um Jónas.
Jehóva er staðráðinn í að
hjálpa tilbiðjendum sínum
því að hann elskar þá.
En Jónas var ekki alveg
að skilja þetta.
Jafnvel eftir storminn,
þrjá daga í fisknum
og að hafa séð Nínívemenn iðrast
hugsaði Jónas bara
um sjálfan sig.
Eftir að Jehóva þyrmdi Níníve
varð Jónas reiður.
Honum leið kannski eins og
hann væri falsspámaður.
Og eftir allt sem Jónas gekk í gegnum
vildi hann frekar að
Nínívemenn myndu deyja
en að hann liti út fyrir að
hafa rangt fyrir sér.
Jónas stóð sig ekki
sérlega vel þarna.
Hvernig brást Jehóva við?
Betur en ég hefði gert.
Þrátt fyrir þessi viðbrögð var
Jónas samt ekki slæmur maður.
Jehóva notaði
flöskugraskersjurt
til að kenna honum svolítið.
Hvað stendur í kafla 4, versi 6?
Það segir að Jehóva hafi
gefið honum jurtina
til að hann fengi skugga
og liði betur
sem er mjög hugulsamt
miðað við hvernig Jónas lét.
Það stendur í versinu:
„Jónas var mjög ánægður.“
Við sjáum að
tryggur kærleikur Jehóva
hjálpaði Jónasi að
leiðrétta hugarfar sitt.
Núna gat Jehóva hjálpað
Jónasi að þroskast.
Jónas var tilbúinn til að
læra aðra lexíu.
Jehóva sendir lítinn orm
til að drepa jurtina – ekki
manneskju heldur jurt.
Hvernig brást Jónas við?
Hann varð aftur reiður.
Það var þá sem Jehóva hjálpaði
honum að taka til sín lærdóminn.
Í versum 10 og 11
er magnað atriði.
Jehóva spyr Jónas:
Fyrst þú vorkennir þessari jurt
ætti ég þá ekki að vorkenna
dýrum og íbúum Níníve?
Og svo lýkur frásögunni.
Jónas leggur frá sér pennann
og leyfir Jehóva
að eiga síðasta orðið.
Hann er búin að ná þessu.
Jónas lærði greinilega að líta fólk
sömu augum og Jehóva gerir.
Já, Jehóva studdi Jónas virkilega.
Hann hætti aldrei að sýna honum
tryggan kærleika sama hvað.
Höldum áfram að grafa.
Hverjir fleiri í frásögunni
nutu góðs af
tryggum kærleika Jehóva?
Var það bara Jónas?
Prófum það sem bókin
Imitate Their Faith nefnir:
„Notaðu ímyndunaraflið.
Sjáðu þig fyrir þér á staðnum.
Reyndu að skilja tilfinningar
sögupersónanna
og sjá það sem þær sáu.
Hvernig brugðust þær við?
Hvernig hefðir þú brugðist við?“
Geturðu ímyndað þér
hvernig Jónasi hefði liðið
ef hann hefði séð sjómennina
grátbiðja falsguði sína um hjálp,
vitandi að þeir myndu
ekki hjálpa þeim?
Jafnvel eftir að Jónas viðurkenndi
að þetta væri honum að kenna
vildu þessir saklausu sjómenn
ekki kasta honum fyrir borð.
Já, þeir gerðu allt sem þeir gátu
til að bjarga lífi hans.
Jehóva sýndi Jónasi góða
eiginleika þessara sjómanna
og hve hjálparvana
og hræddir þeir voru.
Heldurðu að Jónas hafi farið að
líta þá sömu augum og Jehóva?
Gröfum dýpra.
Af hverju sendi Jehóva Jónas
til framandi þjóðar
sem tilbað hann ekki?
Kannski til að gefa
Nínívemönnum
tækifæri til að breyta sér.
Hverjir nutu þá góðs af
kærleika Jehóva?
Sko, Jehóva sýndi Jónasi
tryggan kærleika
en hann sýndi líka sjómönnunum
og Nínívemönnum kærleika.
Einmitt.
Og sjáðu til:
Jónas gerði sín mistök.
En þegar hann fær upprisu
sér hann að
Jehóva notaði ein
stærstu mistök hans
til að kenna okkur eitthvað
um einkason sinn.
Hvernig ætli Jónasi eigi eftir
að líða þegar hann sér
að Jesús nefndi hann með nafni
og líkti sér jafnvel við hann?
Vá!
Við sjáum fullkominn
kærleika Jehóva í verki.
Drögum þetta nú saman.
Hvernig getum við
líkt eftir honum?
Það fyrsta sem ég hugsa um
er boðunin.
Mér finnst hún ekki alltaf
svo skemmtileg.
Það getur verið mjög pirrandi
þegar enginn virðist hafa áhuga.
En svo minni ég mig á að
þetta snýst ekki um mig
heldur eitthvað miklu stærra.
Fyrst Jehóva gefst ekki upp á fólki
ætla ég ekki að gera það heldur.
Það er fallegt, vinur.
Ég er ánægður að þú
skulir hugsa þannig.
Það sýnir mér að þú skilur
hvað er mikilvægt.
Ég hugsa um það þegar ég fæ
verkefni sem mér finnst
óyfirstíganlegt.
Stundum eru fyrstu
viðbrögðin mín ekki þau bestu
og ég segi eitthvað
sem ég sé eftir.
Þá fæ ég samviskubit yfir
viðbrögðum mínum.
En það er hughreystandi að vita
að Jehóva minnist ekki
slíkra augnablika.
Hann sér okkar innri mann
og sýnir þolinmæði þegar hann
hjálpar okkur að þroskast.
Vá, maður lærir allt þetta
með því að:
Og við getum lært meira.
Hvað gætum við lært með því að
nota ímyndunaraflið
til að setja okkur
í fótspor Jónasar,
einn í maga fisksins
að biðja Jehóva um hjálp?
Hvað lærum við
af því að það var
ekki jafn slæmt að prédika
fyrir Nínívemönnum
eins og Jónas
hafði ímyndað sér?