JW subtitle extractor

Upprisan sigrar dauðann

Video Other languages Share text Share link Show times

Ég var ekkert sérstaklega trúaður.
Ég lærði líftækni í háskólanum
og þar var líka talað mikið
um þróunarkenninguna.
Í mínum huga var Biblían
bara hluti af vestrænni menningu
og tengdist
ekkert vísindum.
En ég var hissa þegar
ég rakst á Vaknið!
og las greinar um líffræði
og önnur vísindaleg mál.
Þetta var svo rökrétt.
Ég fór að efast um að svona
gríðarlega flókinn hlutur
eins og líkaminn okkar er
gæti orðið til af sjálfum sér.
Til að búa til bíl þarf að setja fleiri
hundruð hluti saman í réttri röð.
Ef það er ekki gert rétt
virkar bíllinn ekki.
En þessi líffræðilegu kerfi
eins og DNA, RNA og prótín
eru jafnvel
enn flóknari.
Mér fannst órökrétt
að allt þetta
hafi orðið til fyrir tilviljun.
Eftir þetta fór ég að lesa Biblíuna
með öðru hugarfari.
Fyrir um 3500 árum
stóð í Biblíunni
að jörðin myndi ‚svífa í geimnum‘
eða ‚hanga á engu‘
en það eru rétt um 300 ár síðan
vísindamenn áttuðu sig á þessu.
Eftir því sem ég kynntist
Biblíunni nánar
varð ég sannfærðari um að
hún er ekki komin frá mönnum
og að hún
samræmist vísindum.
Þegar traust mitt á
Biblíunni jókst
fór ég líka að trúa á
loforð Guðs um upprisuna.
Biblían segir meira að segja
að Guð ‚þrái að sjá
verk handa sinna‘.
Það er ekki nokkur spurning
um það að Jehóva
bæði getur og vill
reisa upp þá sem eru dánir.
Mér finnst mikil huggun og von
falin í því að treysta á upprisuvonina.
Ég fór alltaf í kirkju, alveg
frá því ég var lítil stelpa.
Mér var alltaf kennt að ef fólk
hegðaði sér vel færi það til himna
en ef það hegðaði sér illa
færi það til helvítis.
Ég trúði líka að sálir látinna ættingja
okkar gætu leiðbeint okkur.
Maðurinn minn lést árið 2018
og það var mjög erfitt. 
En einn daginn heimsótti kona mig
sem er vottur Jehóva.
Hún sýndi mér hvað Biblían
segir um upprisuna
og það var mjög uppörvandi.
En þegar ég hugsaði um það
sem ég trúði þá þegar
fannst mér órökrétt að maðurinn
minn leiðbeindi mér ekki.
Systirin sýndi mér Prédikarann 5:9, 10.
Ég komst að því að
sálin er ekki ódauðleg
og að látnir ástvinir okkar
finna ekki fyrir neinu.
Hún sagði að mannkynið hefði
átt að lifa að eilífu á jörðinni.
Þessi sannleikur úr Biblíunni
losaði mig undan þeim falskenningum
sem ég hafði lært í kirkjunni
og þess vegna ákvað
ég að láta skírast.
Jehóva er vitur, miskunnsamur
og kærleiksríkur.
Í Postulasögunni 24:15 segir
að Jehóva muni
meira að segja reisa upp þá
sem eru ranglátir.
Ég veit að þá fæ ég loksins að
hitta látna ástvini mína aftur.
Ég hlakka svo mikið til að kenna
fólki sem fær upprisu
og hefur ekki kynnst Jehóva enn.