JW subtitle extractor

Er hægt að finna sannleika? Viðtal við Queentelu Abajuo

Video Other languages Share text Share link Show times

Þegar ég var yngri fórum við
alltaf í kirkju hverja helgi.
En við tilheyrðum
ýmsum trúarsöfnuðum
frá því að ég var barn og alveg
þar til ég varð unglingur.
Eitt af því sem fékk mig
til að missa traust
á þeim kirkjum sem við sóttum
er það að ræðurnar
voru mjög tilgerðarlegar,
eins og þetta væri leikhús.
Manni leið vel en
það entist ekki lengi
og maður tók eftir
að í klukkutíma ræðu
notaði presturinn bara
tvö eða þrjú vers
í heilli ræðu.
Það var hræsni í kennslunni
og mikil áhersla
lögð á efnishyggju
og það skorti líka
sannan kærleika.
Mér fannst að það hlyti
einhvers staðar að vera hópur
sem reynir að fylgja því
sem Biblían kennir
eins vel og hægt er.
Ég hikaði fyrst að fara að
nema Biblíuna með vottunum.
Ég treysti þeim ekki alveg
því að ég hélt að þau
væru með sína eigin Biblíu
eða væru sértrúarsöfnuður
með sérkennilega trú.
Þegar ég var í skóla átti ég
vini sem voru vottar
og dag einn bauð einn þeirra
mér á mína fyrstu samkomu
og þrátt fyrir að
ég hafi verið hikandi
þá ákvað ég
að fara með þeim.
Ég sá að það var mikil
áhersla lögð á Biblíuna
og að öll samkoman
var byggð á henni
og jafnvel þegar
fólk gaf svör
þá notaði það ritningarstaði
í svörum sínum.
Það var líka þarna sem ég
hitti biblíukennarann minn
og í náminu sá ég að
þessar ranghugmyndir
voru ranghugmyndir.
Allt sem þau trúa
er byggt á Biblíunni
og skráð á jw.org.
Það er ekkert leyndarmál.
Ég hélt að þau notuðu
sína eigin Biblíu
en í biblíunáminu
hvatti kennarinn mig
til að nota mína eigin Biblíu.
Og ég fann líka fyrir miklum
kærleika innan safnaðarins.
Ég ferðaðist líka á milli staða og
heimsótti aðra söfnuði,
bara til þess að athuga
hvort að kærleikurinn
sé sá sami í öllum söfnuðum.
Og, hann var það.
Mér finnst eins og Jehóva hafi
loksins leitt mig inn á þá braut
sem ég hef alltaf leitað að.